rbs

Valensia

Þá er grár hversdagsleikinn tekinn við aftur og frábærri ferð til Valensíu lokið. Veðrið var allt frá úrhellisrigningu, sem kostaði víst 2 Valensíubúa lífið, til glampandi sólar og 26 stiga hita. Mikið hlegið og borðað eitthvað og aðeins deipt á víni. Skoðaður vínbúgarður og smakkað vín, márakastali skoðaður og ráfað um stræti gamla hluta Valensíu. Einnig gengum við eftir gamla árfarveginum og kíktum á söfnin, dómkirkjuna og fleira. Mæli eindregið með ferð til Valensíu, borg sem lætur engann ósnortin.

Ragga 


Tölvutími

Tölvutími og öll verkefni búin í bili. Er að fara á límingunum af tilhlökkun, Valencia eftir viku. Búin að kaupa gjaldeyrir bara eftir að pakka eða svoleiðis.

Brjálað að gera þangað til smyrja bílinn, fara í klippingu, dóttirin til tannlæknis og örugglega eitthvað fleira. Eins og hjú próf á morgun ææææ.

Gott í bili kv, Ragga


Fyrstu próf búin

Jæja þá eru fyrstu próf búin á þessari önn, gekk bara vel það sem vitað er. Planið er að vera pínulítið lifandi um helgina og hafa smá matarboð. Annars er allt gott að frétta sonurinn kominn á nýjan bíl og þá fæ ég að hafa minn í friði. Gott í bili.

kv.Ragga


Valencia

Jæja nú stittist í Valencia, eftir 20 daga verð ég stödd í Valencia húrra.

Búið að skipuleggja vínsmökkunarferð og fleira gaman.

 


Fyrsta færsla

Sumarið í sumar var með eindæmum gott, sól og blíða dag eftir dag. Var reyndar að vinna fyrripart sumars en síðan í fríi fram í lok ágúst. Fór í nokkrar ferðir um landið og naut sumarsins með fjöldskyldunni.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband